Blogg

28.5.2009

Ótitlað

Kvöldsólin í Hrísateig getur verið falleg.

Skrifað 28.5.2009 kl. 23:05 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

26.5.2009

Hartmann Völundur

Þessi indæli srtákur er í heimsókn í Teignum hjá Afa og Ömmu.

Skrifað 26.5.2009 kl. 20:43 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.5.2009

Rigoletto


Við skruppum í gær vestur í Miðgarð í Skagafjirði og fórum á óperuna Rigoletto. Virkilega gaman að hlusta þennan magnaða söng. Skagfirðingarnir greinilega búnir að leggja mikla vinnu í undirbúninginn. Takk fyrir okkur Skagfirðingar.
 
Við vorum svo rétt lögð af stað heim þegar við komun að bíl sem hafði farið útaf og oltið. Þetta gerðist rétt vestan við brúna yfir Héraðsvötnin. Það var svolítið ógnvekjandi að koma að þessu. Bíllinn lá þarna á hliðinni, með fullum ljósum og hafði greinilega oltið tvær til þrjár veltur. Greinilegt að þetta hafði verið að gerast. Engin hreyfing sjáanleg og maður ímyndaði sér það versta.
Þegar ég kom að bílnum, talandi við 112 í símann á meðan, óttaðist ég að koma að fullum bíl af slösuðu fólki. Mér létti stórlega þegar ég sá unga konu í hnipri inni í bílnum og hún sagði mér að hún væri ómeidd en kæmist ekki út úr bílnum. Ég náði að spenna það sem einhvermntíma hafði verið framrúðan frá þannig að stelpan komst þar út. Þá gat ég klárað símtalið við 112 og sagt þeim hvernig staðan var.  Ég lánaði henni simann hennar Bobbu til að hringja í mömmu sína og svo biðum við bara róleg efir lögreglunni frá Sauðárkróki.
Það sem leit út fyrir að vera stórslys reyndist bara vera ónýtur bíll og sjokkeruð stelpa. Óskaplega varð ég feginn.

Skrifað 22.5.2009 kl. 11:38 af

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.5.2009

Nýbúar

Ný fjölskylda er flutt í Teiginn og búin að fjölga sér. Maður er óneitanlega feginn að engir kettir séu í hverfinu. Þrastafjölskylda bjó um sig milli greina í lerkitré í garðinum og þar eru nú komnir fjórir ungar. Það er ekki hægt að segja að þeir séu fallegir greyin, ekki búnir að opna augun og ekkert nema kjafturinn.

 

Skrifað 20.5.2009 kl. 19:41 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

18.5.2009

Ótitlað

Þrælskemmtileg helgi að baki. Á föstudaginn var hengdum við hjólhýsið aftan í Kiuna og héldum vestur á Sauðárkrók. Þar skemmtum við okkur með frábærum hópi af skemmtilegu fólki. Á laugardaginn var farið í skoðunarferð um Skagafjörðinn og farið fram í Gilsbakka. Á heimleiðinna komum við svo við í Flatatungu þar sem húsráðandinn, hún Íris Olga tók á móti okkur með kaffi og kökum.



Systkinin tróðu sér fyrir framan myndavélina með húsfreyjunni á staðnum.

Um kvöldið borðuðum við svo veislumat í Háuhlíðinni,sem þær systur Gunna og Ragna högðu útbúið. Þetta var alveg meiriháttar veisla hjá þeim systrum.

Skrifað 18.5.2009 kl. 22:43 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.5.2009

Ótitlað

Skoða nánar

7.5.2009

Ótitlað

Skoða nánar

2.5.2009

Nafnadagur

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 7
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 36
Gestir í gær: 16
Samtals flettingar: 47568
Samtals gestir: 16498
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 05:38:26