Blogg
27.2.2009
Ótitlað
25.2.2009
Öskudagur
Upp er runninn öskudagur, með norð-austan skítviðri.
Það var snarvitlaust veður í nótt. Austan stórhríð eins og hún gerist best. (eða verst, eftir því hver á horfir). Í morgun gekk veðrið svo niður að mestu, en samt er búið að vera leiðindaveður ídag. Ég vorkenndi krökkunum sem þvældust um bæinn í öskudagsbúningum, klofandi skafla í hríðarveðri. En það er bara merkilegt hvað er seigt í þessum krökkum þegar þau eru rekin áfram af löngun í sælgæti. Þau eru töff, þessi litlu skinn, hvað sem hver segir.
Það er búið að vera vitlaust að gera á skrifstofunni í dag. Endalaus traffik af undarlegum viðskiptavinum, sem allir áttu það sameiginlegt að vilja skipta við okkur á söng og sælgæti. Svo voru reyndar nokkrir sem nefndu eitthvað um tryggingar og tjón, en þeir verða bara að koma seinna. Það er svo þannig með söngvarana hér eins og í Idolinu að þeir eru náttúrulega misjafnir, en sumir sungu þannig að það var virkilega gaman að hlusta á þá.
Hér eru nokkur sýnishorn af þeim sem komu til okkar.

20.2.2009
Ótitlað
Það er bara þannig að þegar maður hefur ekki frá neinu að segja þá talar maður bara un veðrið. Það snjóaði í dag. Í kvöld fór ég svo út í garð og tók nokkrar myndir. Það er að segja, ég gerði nokkrar tilraunir með vasaljós og myndavél.
18.2.2009
nenna
Þetta er mynd sem ég tók á bílastæðinu í portinu á bak við Vís á Húsavík.
14.2.2009
Norðurljós og alles
Kvöldið er fallegt, kalt en stjörnubjart. Tími ril að láta renna í pottinn. Það jafnast ekkert á við að liggja í heitum pottinum í myrkrinu og horfa á stjörnurnar og norðurljósin.
Ps.

