Blogg

29.12.2008

Edda Rós

Þessi stelpa á afmæli í dag
Til hamingju daginn Edda mín
Við söknum þín.

Skrifað 29.12.2008 kl. 23:47 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.12.2008

Jólin



Við höfum verið að undirbúa jólin síðustu daga hér í Hrísateignum. Ragna er búin að baka smákökur og við búin að snurfusa svona aðeins í kringum okkur. Við máluðum tvö herbergi og lögðum parket á þau, (að sjálfsögðu er smá frágangur eftir. Þannig er það bara).
Svo fórum við hjónakornin upp í skógrækt hérna ofan við Hrísateiginn og tókum okkur jólatré. Okkur þótti heldur þunnt að hafa engan strák til að hjálpa okkur við þetta. Strákpjakkurinn sem hefur hjálpað okkur við þetta undanfarin ár er nefnilega svo langt í burtu núna. En við kláruðum okkur á þessu og nú er hríslan komin inn í stofu og búið að skreyta.

 

Úti er svo búið að koma fyrir nokkrum ljósaseríum jólasveinn er að klifra ofan af bílskúrnum. (eða upp á hann, eftir því hvernig á það er litið).
En alltaf kemur upp í hugann hjá okkur við flest sem við tökum okkur fyrir hendur að ósköp væri nú gott að hafa einhvern ömmu/afa-strák til að hjálpa sér við jólaundirbúninginn. Og að hjálpa til að láta renna í pottinn og svoleiðis.
 En emoticon .

Annars er allt að verða klárt og jólin koma áreiðanlega þó að strákarnir okkar séu annars staðar. Annar í Ameríku og hinn í Noregi.

Skrifað 23.12.2008 kl. 22:16 af

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.12.2008

Partý

Í morgun, eða kanski ætti ég að segja í gærmorgun, því nú er komið fram yfir miðnætti, þá var ég vakinn með löngu kröftugu ropi. Þessu var strax svarað með öðru langdregnu ropi, sem virtist vera alveg upp við svefnherbergisgluggann. Þetta hélt svona áfram nokkra stund. Rjúpukarrar að rífa kjaft hver við annan í miklum móð. Þegar við kíktum út um gluggann kom í ljós að í garðinum hjá mér stóð yfir yfir heljarinnar veisla. Við töldum að minnsta kosti tíu rjúpur hingað og þangað í garðinum hjá okkur vera að kroppa brum af runnum og trjám í garðinum. Þetta er alveg snilld. Að fylgjast með þessum fuglum í garðinum, svona rétt fyrir jólin. Þegar fjöldi fólks væri tilbúið að gefa frá sér skinsemina til að geta haft þetta í jólamatinn. Að sjá þessa klunnalegu fugla reyna að halda jafnvægi á veigalitlum greinum trjánna við að kroppa brumin af þeim. Ég stóðst ekki freistinguna að taka nokkrar myndir í gegnum svefnherbergisgluggann af veislugestunum í garðinum.








Skrifað 14.12.2008 kl. 0:30 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

5.12.2008

Jólafíííling

Hó hó
Í tilefni af því að nú eru jól að nálgast þá setti ég inn nokkrar jólalegar myndir inn í albúm hér á síðunni. Aðeins til að koma sér í jólafíling. Ekki veitir af að reyna að slá aðeins á þetta takmarkalausa svartnættisraus sem hellt er yfir þjóðina.

Skrifað 5.12.2008 kl. 20:12 af

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 11
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 38
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 47483
Samtals gestir: 16460
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 05:40:57