Blogg

26.11.2008

Hjólhýsi

Við hjónakornin skruppum suður í borg bleytunnar um helgina sem leið.
Hengdum þetta hjólhýsi  svo aftan í Kiuna áður en lagt var af stað heim.
Þannig að ég ítreka það að fellihýsið okkar er til sölu.


Skrifað 26.11.2008 kl. 20:56 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.11.2008

Rjúpnavertíðin

Um daginn fór ég í rjúpur. Gekk í 5 tíma í erfiðu landi, úfnu hrauni, karkaþýfi og snjó sem maður sökk í upp undir hné. Varla fugl að sjá og veiðin eftir því. Síðustu nokkur hundruð metrarnir í bílinn voru óbærilega langir og mér fannst ég hafa unnið þrekvirki að koma sjálfum mér hjálparlaust aftur til byggða. Hetja nr.1.

Í morgun lét ég mér detta í hug að það væri nú skinsamlegt að fara í rjúpur, í nokkra tíma labb, eða svo. Afrakstur fyrri ferða er varla  svo mikill að  dugi í eina máltíð. Ég byrjaði daginn á að fá mér kaffisopa við eldhúsgluggann og horfði út á nýfallinn snjóinn í sólskininu. Skoðaði hvernig snjókoman í gærkvöldi hafði hlaðist ofan á toppinn á Mússó og hvernig járnaruslið og grjótið framan við húsið tók sig út í snjónum. Þatta var allt saman ótrúlega fallegt eins og sést á myndunum.
 
Það er hins vegar þannig að þegar maður þarf að byrja veiðiferðina á að reka rjúpurnar ofan af bílnum, þá er það  einhvernveginn þannig að manni finnst þetta allt eitthvað öfugsnúið. Ég ákvað því með sjálfum mér að nota þennan fallega dag til einhvers annars og láta rjúpurnar eiga sig í dag. Það er nóg hægt að finna sér að gera.
Þessar myndir voru teknar út um eldhúsgluggann í morgun.
En rjúpurnar sem halda til hér í görðunum í kringum húsin eru á algeru friðlandi og við látum þær í friði.

Skrifað 15.11.2008 kl. 11:16 af

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.11.2008

Fellihýsi til sölu

05.08.2009
Þar sem enn eru að berast fyrirspurnir um fellihýsið, vil ég taka fram að það er selt.
-----------------------------------------------------


Góðan daginn
Nú þýðir ekkert kreppukjaftæði.
Af sérstökum ásæðum er þetta fellihýsi  til sölu.
Coleman Carmel 10 fet, fyrst skráð 2005


Skrifað 13.11.2008 kl. 22:28 af

Bein slóð á færslu

10 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

8.11.2008

Hrakfarir

Hrakfallabálkur á hæsta stigi.

Um daginn þegar við fórum í sumarbústað við Hreðavatn var ég með myndavélina mína uppi, svona eins og ég geri stundum. Þá kom að því að mig langaði að vera með á mynd, oftast vantar nefnilega einn á myndina þegar teknar eru skemmtilegar stemmningsmyndir, þ.e. ljósmyndarann. Hvað um það, ég stillti græjunni upp á litlum þrífæti og gerði allt klárt til að taka mynd á tíma, svo ég gæti smeygt mér inn í hópunn áður en vélim smelti af. Við vorum í heitapottinum í frábærum félagsskap og höfðum það notalegt. Það sem ég varaði mig ekki á var að þar sem var komið nokkuð frost var undirlagið undir þrífætinum ekki alveg eins áreiðanlegt og ég hafði reiknað að með. Ég sem sagt stillti vélinni upp og smellti af og reiknaði með að vélin hagaði sér svo eins og ég hafði lagt upp með. En það fór á annan veg. Vélarhelvítið var ekki stöðugra á löppunum en svo að hún kom á eftir mér og skall á pallinn. Eftir þetta hefur myndavélin mín ekki gert neitt fyrir mig þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Síðasta vika hefur svo farið í að skoða myndavélasíður á netinu. Ég hef reyndar fengið léttar glósur um að þetta hafi verið planlagt til að ég geti fengið mér nýja myndavél.

En þetta er ekki búið.

Um daginn hringdi Bobba í mig þegar ég var á leiðinni heim. Ég er að sjálfsögðu með "handfrjálsan búnað" á símanum mínum. Það er svona stórættuleg snúruflækja með heyrnartóði á endanum. Svo að þegar Bobba hringdi byrjaði ég á að flækjast í snúrunni í heyrnatækið og endaði með þvi  að síminn skurraði niður á gólfið í bílnum. Fallið var ekki hátt og lendingin alls ekki harkaleg, en síðan þetta gerðist hefur síminn verið álíka lífvana og myndavélin.

Þá ver dreginn fram aldraður Nokia sími sem virðist ódrepandi og símakortið sett í hann. Ég var eiginlega farinn að kunna vel við hlúnkinn (þetta er svona sími sem maður geymir ekki í brjóstvasa) þegar Bobba færði mér þennan líka flotta síma, sem svona snemmbúna afmælisgjöf. (ég þurfti að koma því að, að ég á afmæli á næstunni).

Það var sem sé 3g sími með fleiri græjum en ég get tíundað.

En þegar Myndavélin var farin og svo síminn, er spurningin hvað verður það þriðja. (allt er þá er þrennt er). Ég hef farið voða varlega síðustu dagana og ekki þorað handleika neinar græjur að ráði, af ótta við allt fari á vesta veg.



P.s,
Mér er illa við Gamla Brún

Skrifað 8.11.2008 kl. 23:30 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 7
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 53
Gestir í gær: 20
Samtals flettingar: 47670
Samtals gestir: 16529
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 03:31:31