Blogg
22.7.2008
Vísa
Nú langar mig að vita hvort einhverjir þarna úti kannist við þessa vísu og eitthvað um tilurð hennar.
Vísan er svona:
Í huga mér laust þeirri hugsun niður
sem hefja mun líklega frægð þessa lands,
að þú sért hinn tapaði tengiliður
sem talinn er milli apa og manns.
Látið endilega vita ef þið kannist við þetta.
21.7.2008
Ráðleysa
Nú var heldur betur tekið á því um helgina. Við skruppum suður í Ráðleysu á föstudagskvöldið. Á laugardaginn var svo hafist handa við að byggja sólpall framan við bústaðinn. Á laugardeginum tókst okkur að reka niður undirstöður undir pallinn, koma fyrir dregurum á undirstöðurnar og grinda síðan ofan á dregarana. Fjöldi manns kom til okkar í bústaðinn um helgina til að líta á framkvæmdirnar og tefja fyrir, eða hjálpa til. Fengum við fjöldan allan af ábendingum, tilsögnum, leiðbeiningum og spurningum. Allt góðra gjalda vert, en kannski ekki endilega ástæða til að taka allt alvarlega.
Einn fór reglulega í hlutverk verkstjóra hjá Ístak og gerði ítrekaðar tilraunir til að brjóta niður sjálfstraust hinna vinnandi manna. Og eins og verkstjórar gera, þá rauk hann upp í gröfuna á staðnum og rústaði skítahaugnum hennar Eddu.
Öddi og Gulla gistu með okkur í Ráðleysu um nóttina. Um kvöldið var kveikt upp í kamínunni á veröndinni og setið við hana og spjallað, kíkt í rauðvín og tæmdir tveir eða þrír baukar.
Á sunnudeginum fórum við svo á fætur eldhress og héldum áfram smíðinni. Gísli sem komið hafði uppeftir á laugadeginum og tekið til hendinni með okkur Ödda við að reka niður uppistöðurnar kom svo aftur uppeftir á sunnudeginum og skrúfaði niður dekkið á pallinn meðan rafmagnið á skrúfvélunum entist.
Um kvöldið fórum við Bobba svo suður á Keflavíkurflugvöll og sóttum Eddu Rós og Hrafnkel Myrkva, sem voru að koma frá Kaupmannahöfn. Keyrðum svo norður í nótt og komum heim í Hrísateiginn klukkan 06:00 í morgunn.
Verð að viðurkenna að þetta hefur haft örlítil áhrif á vinnugleðina á skrifstofunni í dag, en þó ekki til teljandi skaða held ég.
13.7.2008
Gamlar myndir
Í fyrra fékk ég í hendurnar kassa með gömlum myndum frá foreldrum mínum. Mikið af þessum myndum eru gamlar og sumar hverjar eru frá því að vegavinnumenn í Dölum bjuggu í tjöldum. Aðrar eru frá Ólafsfirði, Skagaströnd, Reykjaskóla og víðar. Ég tók mig til og skannaði allar þessar myndir áður en ég skilaði kassanum. Nú hef ég sett þassar myndir hér á vefinn í nokkur albúm. Alls eru þetta um 640 myndir í 7 albúmum. Ég vil endilega biðja þá sem telja sig þekkja þá sem eru á myndunum, eða staðina þar sem myndirnar eru teknar, eða hvað sem er viðkomandi myndunum að skrifa athugasemd við viðkomandi mynd.
Vona svo að þið hafið gaman af að fletta í gegnum þetta.

12.7.2008
Abbilá
Stundum leitar maður langt yfir skammt þegar maður leitar að fallegum stöðum til að skoða. Oft leynast náttúruperlur í næsta nágrenni manns án þess að maður hafi veitt þeim athygli. Við hjónakornin brugðum okkur í göngutúr í dag og á ákváðum að fara út á Tjörnes og ganga smávegis eftir fjörunni. Fjaran er þarna að visu svolítið erfið yfirferðar, stórgrýtt fjörugrjótið varasamt fyrir ökkla og hné. En engu að síður er gaman að fara þarna um. Við fengum þungbúið veður en hlýtt og við rétt sluppum við rigninguna sem helltist yfir um það leiti sem við komum aftur í bílinn. Ég setti nokkrar myndir úr túrnum inn í albúm.

7.7.2008
Farin burt
En ekkert væl.
Elva og Magni, gangið ykkur vel þarna vesturfrá,
Myndin er tekin í Ráðleysu daginn áður haldið var vestur um haf.

