Blogg
27.4.2008
Volvo
Ég nefndi um daginn að ég hefði fundið beyglaðan Volvo á stéttinni framan við bílskúrinn. Ég hef látið það eftir mér að fara aðeins höndum um beygluna, eins og eigandinn ætlaðist til. Ljósið kom, svo ég hef ekki afsökun fyrir lengri bið í bili. Annars hefur eigandinn ekkert spurt eftir bilgarminum sínum, þrátt fyrir vera í standandi vandræðum með "bæverska mótorverkið" sitt. En það er nú annað mál.
Mér datt hins vegar í hug að láta heimsbyggðina fylgjast með hvernig gengi.
26.4.2008
Refurinn
Í þeim örfáu ferðum mínum á vélsleða í vetur hef ég nokkrum sinnum rekist á refaslóðir og jafnvel greni. Mér finnst þetta svolítið forvitnilegt dýr, sem er ofsótt hvar sem það sést. En það er annað sem vakir fyrir mér núna í þessari færslu.
Ég minnist þess að hafa fyrir mörgum árum lesið kvæði þar sem þessi orð koma fyrir: Refur grefur greni í urð,........
og annars staðar segir í kvæðinu: ...........og friðunarlög eru sett, en refurinn er sem áður utan við lög og rétt.
Nú langar mig að vita hvort einhver þarna úti kannist við þetta kvæði og höfundinn. Endilega látið mig vita ef einhver þekkir þetta.
Mynd úr Wikipedia
24.4.2008
Hasar í beinni
Hrikalegt var að fylgjast með því í beinni útsendingu hvernig lögreglan í Reykjavík drullaði gjörsamlega upp á bak í framhaldi af aðgerðum vörubílstjóra. Það var nöturlegt að sjá menn í lögreglubúningum missa svona algerlega stjórn á sér, sprautandi piparúða framan í vegfarendur. Að sjá þessa menn öskrandi eins og brjálæðinga og sprautandi þessum úða á vegfarendur og reyna að hitta fólk á 10 metra færi. Þetta var algerlega út úr korti. Ég er á því að þarna hafi lögreglan átt alerlega sök á því ástandi sem varð. Það hefur komið fram að bílstjórarnir vildu fara með bílana í burtu, en lögreglan ekki tekið það í mál, þar sem komið var fram yfir einhver tímamörk sem lögreglan setti. Það má vera ljóst af því sem bæði lögreglan og bílstjórar hafa sagt um atburðarásina að lögreglan var að kalla eftir svona fjöri. Þeir gátu leyst málið án átaka, en vildu frekar hasar. Það fór um mann hálfgerður kjánahrollur að sjá þessar aðfarir. Íslenska óeirðalöggan í aðgerðum. Flokkur manna standandi bak við plasthlífar og verja sig fyrir eggjakasti. Á meðan aðrir gengu um algerlega vitstola og sprautuðu þessum úða framan í hvern sem var, bara hvern sem kom í færi við bununa úr brúsunum. Það var ekki eins og þessir menn væru að verjast árás. Þeir voru sjálfir árásaraðilinn. Löggan kallar þennan úða varnarúða, en í þessu tilfelli var hann árásartæki. Menn geta svo haft skoðun á þessum aðgerðum bílstjóranna. Það hlýtur að vera pirrandi að sitja fastur í umferðinni alveg óundirbúið tímunum saman bara af því að einhverjur trukkakallar loka veginum fyrir manni. En það er bara allt annað mál.
18.4.2008
Kia
Gott að keyrann.
Eyðir litlu
Slógum til.
Við fórun hjónakornin til Akureyrar í dag og komum heim með þennan.
17.4.2008
Freistingar
Annars var kvöldið fallegt þó að þar væri orðið kalt. Gargandi gredduhljóð í þröstunum í öllum runnum og sjónvarpsloftnetum.

