Blogg
21.3.2008
Í dag skelltum við okkur í heimsókn til Odense. Þar heimsóttum við Þórhönnu Svansdóttur og börn. (Hafþór var ekki heima).
Þegar heim var komið fórum við svo öll sömul út að borða. Fórum á Mongolan barbecue, sem er stutt frá Ráðhústorginu. Eftir að hafa raðað í okkur þar fór yngri tasían heim til Eddu og Dodda á Sólbakken, en við gömlu röltum Strikið áleiðis að Kongens Nytorf, til að taka Metró út á Amager. Á leiðinni notuðum við tækifærið og fórum í kirkju. Það var nú föstudagurinn langi. Í kirkjunni stóð yfir flutningur á kórverki sem fjallaði um aðdraganda krossfestingarinnar.
Edda Rós og Rannveig Ása Hrafnkell Myrkvi og amma á leið til Odense

Ragna og Rannveig Ása Þórður Freyr

21.3.2008
Carlsberg
Í Gær afrekuðum við það helst að heimsækja Carlsberg verksmiðjurnar. Þetta var fróðlegt rölt um gömlu verksmiðuhúsin, þar sem bjór hefur verið bruggaður ofan í Baunana, með góðum árangri í tvær aldir eða svo. Þessi skoðunarferð endaði svo með því að smakka veigunum sem kenndar eru við Carlsberg og Jakobsen og Tuborg.
19.3.2008
Ótitlað
Enn var labbað
Í dag lögðum við af stað, gamla settið, og ætuðum að ganga eina af gönguleiðunum hans Guðlaugs. Lögðum snemma af stað, það er að segja fyrir hádegi og tókum Metro upp á Kongens Ny torv. Þaðan ætluðum við að fylgja leiðsögn úr bókinni hans. Fljótlega kom í ljós að hitastigið var fyrir neðan skinsemismörk á Íslandi, þannig ánægjan af þvi að ganga eftir leiðsögn upp úr bók fölnaði ofurlítið. Þá fengum við þá snjöllu hugmynd að fara á sjóinn. Fara túr með með útflöttum túristapramma um sund og voga í hjarta Kaupmannahafnar. Þetta var ekki svo vitlaust, við gátum verið í upphituðu skjóli og hlustað á leiðsögn á nokkrum tungumálum og stokkið upp á dekk öðru hvoru til að taka myndir.
Skömmu eftir landtöku í Kongens Nyhöfn hringdi Edda Rós í okkur og óskaði eftir að við mundum hittast fljótlega og þá helst í námunda við Ráðhústorgið. Það varð úr og eftir það þrammaði stórfamilien stefnulítið um hjarta Kaupmannahafnar með viðkomu meðal annars í kjallara Kristjánsborgarhallar og á Fisketorved. Já það er margt hægt að skoða í Köben. Eitt er víst að öll í hópnum voru orðin dauðþreytt þegar komið var heim í Solbakken.


18.3.2008
Og svo fór sólin að skína
Við fórum í langan göngutúr í dag, gamla settilð og Hrafnkell Myrkvi. Lögðum af stað frá Sólbakken og gengum í gegnum Carlsberg verksmiðjukverfið. Þaðan áfram og austur eftir Istegade og röltum svo niður í Fisketorvet. Skoðuðum í nokkrar búðir og héldum svo heim aftur í Solbakken. Það var bjart veður og sólskin í dag, en fjandi var kalt í norðan nepjunni.

17.3.2008
Veðrið í Kaupmannahöfn
Hér eru svo myndir frá Bakken og aðrar sem teknar voru af veðrinu séð úr íbúðinni í Solbakken á 9. hæð.
Þessi mynd er tekin áður en lagt var af stað í parísarhjólið, eða hvaðsemðaheitir.

Ragna og Hrafnkell í víkingabát Hér fóru þau rosalega hátt, en afi þorði ekki

Veðrið eins og það leit út af svölunum á 9. hæð í Solbakken í dag, mánudag


